|
Frá Sniglum. |
|
|
|
Skrifað af Yngvi Högnason
|
|
Þriðjudagur, 09 Júní 2009 22:04 |
|
Átak Snigla gegn skellinöðruslysum
Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Sniglar hafa ákveðið að blása til sérstaks forvarnardags með skellinöðrukrökkum á höfuðborgarsvæðinu. Ástæðan er sú að samkvæmt nýútkominni slysaskýrslu hjúkrunarfræðinemanna Kristrúnar Guðmundsdóttir og Ragnheiðar Erlu Eiríksdóttir eru mótorhjólaslys algengust á skellinöðrukrökkum. Algengasti aldur ökumanna í mótorhjólaslysum er 15 ára en þar urðu 5,8% slysa á árunum 2003-2007. Fyrir 16 ára aldurinn var hlutfallið svipað eða 5,5% á sama árabili. Mikil aukning hefur orðið á skellinöðrum og vespum í umferð á síðustu árum og eru þar á ferðinni ökutæki sem ekki mega ná meira en 45 km hraða, sem er helmingi lægri ökuhraði en mestur má vera hér á landi. Einnig eru kröfur til skellinöðruprófs of litlar og í rauninni barn síns tíma því ennþá er unnið samkvæmt kerfi sem sett var á kringum 1960. Til að reyna að snúa þessari óheillavænlegu þróun við ætla Sniglar að taka þennan hóp í fóstur og fyrsta skrefið er svokallaður forvarnardagur sem fram fer 10. júní við húsnæði samtakanna í Skerjafirði, í gamla Skeljungsportinu. Hefst dagskráin kl 19:00 og verður lögreglan og ökukennarar ásamt Sniglum á svæðinu til leiðbeiningar og er áherslan lögð á að fræða um öryggisbúnað og varnarakstur í umferð. Einnig verður Njáll Gunnlaugsson, ökukennari með sérstaka hjólafimikeppni fyrir þennan aldurhóp og verða veitt verðlaun fyrir besta árangurinn. Léttar veitingar verða einnig í boði Ó. Johnson og Kaaber. Unglingar eru hvattir til að mæta á hjólunum sínum og taka mömmu eða pabba með, hvort sem að þau eru á mótorhjólum eða ekki. |
|
Fyrsti dísel túrbó hippinn |
|
|
|
Skrifað af Gunnar Þórarinsson
|
|
Laugardagur, 06 Júní 2009 16:13 |

Smá fróðleikur um World's first turbo-diesel production bike
Neander 1400 Turbo Diesel
http://www.youtube.com/watch?v=eNKK4IBDgE8
http://www.motorcyclecruiser.com/roadtests/neander_1400_turbo_diesel_motorcycle/index.html
|
|
Hjólamessan. |
|
|
|
Skrifað af Yngvi Högnason
|
|
Miðvikudagur, 03 Júní 2009 08:59 |
Hin árlega hjólamessa var haldin í Digraneskirkju að kvöldi annars hvítasunnudags. Að venju var margt um manninn og má sjá myndir á meðfylgjandi hlekk.
diesel.123.is/album/default.aspx |
|
Dúllarar 5 ára. |
|
|
|
Skrifað af Yngvi Högnason
|
|
Miðvikudagur, 27 Maí 2009 08:27 |
|
Það var árið 2004. Í byrjun sumars um miðjan maí, að ég fékk próf á mótorhjól. Ég hafði lært til prófs hjá Njáli Gunnlaugssyni og keypti líka af honum fyrsta hjólið mitt. Það var Honda Shadow 500, alveg ágætis hjól fyrir byrjanda. Fyrstu dagana hjólaði ég um bæinn, nokkuð rogginn en ávallt einn. Eftir að hafa purrað um stræti vítt og breitt, endaði ég niður á Ingólfstorgi. Var þar eitthvað af hjólamönnum og fann ég fljótlega fólk sem mér líkaði ágætlega við. Uppfrá því fór ég að hjóla með þessu fólki og fór meðal annars með því út í Skerjafjörð og skráði mig þar í Sniglana. Snigill # 1514. Ekki ónýtt, búinn að vera með hjól í viku eða svo og strax orðinn Snigill. Áfram hélt ég að hjóla með þessum nýfengnu vinum og var víða farið. Svo var það miðvikudaginn annan júní að ég fór á Sniglafund vestur í Skerjafjörð. Sit þar uppi og spjalla við mann og annan þegar Frikki,Snigill # 1398, einn af þessum sem ég hafði kynnst, dregur úr pússi sínu blað og segir stundarhátt: “Mig langar til að stofna hjólahóp, hann á að heita Dúllarar og á að vera fyrir þá sem vilja hjóla saman. Hér er blað sem þið getið skrifað ykkur á ef þið viljið vera með”. Hann skellti blaðinu á borðið og skrifaði þar nafnið sitt. Næstur honum skrifaði drengur að nafni Birgir #751, svo Yngvi #1514, Kristján #668 , Magnús # 1434, Vilhjálmur Bjarnason, ekki kominn með Sniglanúmer þá, Óli Raggi, Þórarinn #1413, Pétur #1448, Eiríkur # 1428 og Sigga Einars # 677. Þetta blað er enn til og hangir það á vegg í klúbbi Dúllara. Á þessum fundi voru líka Andrés og Björn J.Hannesson sem gengu í klúbbinn síðar. Framangreint hjólafólk var allt í byrjunarhóp Dúllara fyrir utan Birgi, Kristján og Magnús . Þannig að annan júní n.k. eiga Dúllarar fimm ára afmæli. |
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 9 af 14 |