Lög um hlífðarfatnað Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Gunnar Þórarinsson   
Sunnudagur, 20 September 2009 09:49
Vonum að lög og reglur um hlífðarfatnað verði ekki of strangar, skemmir verulega
það sem fyrir augu ber.

 
Skoðun bifhjóla Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Gunnar Þórarinsson   
Föstudagur, 04 September 2009 13:26

  Umferðarstofa vekur athygli á því að breyting varð á reglugerð um skoðun ökutækja með tilkomu nýrrar reglugerðar í janúar sl.

  Samkvæmt reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja er nú skylt að færa bifhjól til skoðunar fyrir þann 1. ágúst á skoðunarári, óháð síðasta tölustaf í skráningarmerki. Hafi skoðun ekki verið lokið fyrir þann 1. október leggur sýslumaðurinn á Bolungarvík vanrækslugjald að upphæð kr. 15.000,- á eiganda bifhjóls.

 Ýmsar aðrar breytingar áttu sér stað með nýju skoðunarreglugerðinni, s.s. varð skylt að skoða hjólhýsi, tjaldvagna og fellihýsi, skoðanatíðni ýmissa ökutækjaflokka breyttist og margt fleira. Áhugasamir geta kynnt sér samantekt þessara breytinganna hér: http://www.us.is/id/1000329

 

 
Er Hlífðarfatnaðurinn þinn CE merktur ? Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Gunnar Þórarinsson   
Þriðjudagur, 01 September 2009 08:11

Samkvæmt drögum að nýjum umferðarlögum er verið að skylda mótorhjólfólk á Íslandi til að nota staðlaðann hlífðarfatnað. Þarf allur gallinn þá að vera með CE merkingum sem þýðir einfaldlega að hann standist ákveðnar gerðir prófana, ef framleiðandi vill merkja hann þannig. Þetta eru Evrópureglur þannig að gallar framleiddir fyrir önnur markaðssvæði eru oftar en ekki án CE merkinga. Á Íslandi er löng og góð hefð fyrir notkun hlífðarfatnaðar og er Ísland líklega síðasta landið sem að þarf á slíkum lögum að halda. Norðmenn settu á svona lög fyrir nokkrum árum en drógu svo þá lagasetningu til baka þar sem að hún var talin ganga of langt. Íslenskt hjólafólk er á sama máli, og hafa Sniglar með stuðningi LÍM mótmælt þessari lagasetningu og lagt til að hún verði einskorðuð við þá sem hafa mótorhjól að atvinnu. Hjólafólk.is er að kanna hvernig galla fólk á hérlendis og hvort hann sé yfir höfuð CE merktur. Viljum við því biðja ykkur ágæta hjólafólk að taka þátt í þessari könnun til að hjálpa okkur í baráttunni. Við viljum semsagt að þú skoðir gallann þinn og sjáir hvort að hann sé með CE merkingum og hvort að einstakir hlutar hans innihaldi eftirfarandi staðla:

Hjálmar – ECE 22.05
Stígvél – CE EN 13634
Jakka og buxur – CE EN 13595
Hlífar – CE EN 1621
Hanskar – CE EN 13594
Gleraugu – CE EN 1938

Til að skoða hlífarnar gætir þú þurft að taka þær úr gallanum en staðallinn á að vera þrykktur í efnið. Á hjálminum er merkingin annað hvort aftan á eða á miðanum inni í hjálminum, sem og á öðrum hlutum. Þessi könnun gæti gagnast vel og mikilvægt að em flestir taki þátt og á sem skemmstum tíma. Taktu þátt. Hjólafólk á Íslandi notar hlífðarfatnað. Þess vegna þarf ekki að setja það í lög!  

Tengillinn í könnunina á hjolafolk.is er hér:

http://www.hjolafolk.is/index.php?option=com_surveys&Itemid=&act=view_survey&survey=CE%20Merkingar

 

 
Upp á Litlu og niður á torg. Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Yngvi Högnason   
Miðvikudagur, 19 Ágúst 2009 11:08
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 14

Dagskráin

Fréttaskot

Umræðan

Vissir þú ……
Að það er haldið mót í Þýskalandi sem kallast Fíla rallýið ( Elephant Rally)
og það er haldið um miðjan vetur.
  • Vantar aðstoð
    Nú eru hurðirnar á neðri hæðina komnar í hús og okkur vantar smið til að...
  • Hjóladagar
    Hjóladagar tókust með ágætum og mættu yfir 200 manns inn á safn á föstudagskvöldinu. Katý...
  • Gjöf frá JHM sport
    Jón Magg hjá JHM sport hafði samband og lagði til 100.000 krónur í safnið með...

Tengdir notendur

Samtals: 12 inn á síðunni þar af 0 Dúllarar og 12 gestir
Enginn Dúllari tengdur

Teljarinn

Samtals heimsóknir : 42791

Copyright 2008 - 2009 Dúllarar vefstjori@dullarar.is - Vefhönnun - KJÓARNIR